fimmtudagur, apríl 12, 2007

Busy miss Lizzy!


Er á haus í verkefni með krítík í fyrramálið og því er tilvalið að eyða tíma í að blogga.
Gleðifregnir eru þær helstar að ég er fluttur úr helvíti og til himnaríkis, eða því sem næst. Sem er bara gleði. Ætlaði reyndar að flytja fyrir páska en öfl úr öðrum heimi komu í veg fyrir það.
En það gjörði það að verkum að í staðinn fyrir að eyða páskunum í að koma sér fyrir og læra þá fór ég með Önnu minni dönsku út á Jótland í nokkra daga. Sem vægast sagt var barasta snilld.
Kom til baka í bæinn á sunnudag og fór þá beinustu leið í purusteik a la Gugga með brúnuðum jarðeplum og læti. Ég veit ekki hvort var brenndari puran eða andlitið á Björgvin. Þau ektaparið voru senst að koma úr ölpunum deginum áður.
Og til að toppa góða páska komu Jakob og Sollan úr Berlín og gistu eina nótt. Þessir 24 tímar sem þau stoppuðu voru nýttir vel að okkar sið.
En nú er sem sagt eymd og volæði í 25 tíma í viðbót og svo kærkomið helgarfrí.
Lét fylgja með mynd tekna af heimasætunni, í noregi hér í feb. Ef þessi fer ekki í jólakortið í ár þá veit ég ekki hvað!

5 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

hehe elsku arnór minn hvað þú ert einstaklega gay á þessari mynd! enda ertu alveg einstakur :)

8:17 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

haha - þetta er æðisleg mynd! ..ertu gay? bíddu.. varstu þá ekkert að meina þetta sem þú sagðir við mig um daginn? .. hvað með börnin tvö og sumarbústaðinn við laugarvatn?

11:01 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Kannski alltílagi að minnast á höfundarrétt myndarinnar...ha? Nei nei bara grín, þú munt heyra frá lögfræðingnum mínum.
Erum að spá í að grilla á Kringså á morgun, þú ert meira en velkominn. Spáir 18 stiga hita og sól.
Og Nóra mín "færeyska" takk fyrir síðast. Þú ert höfðingi heim að sækja og gestgjafi góður.

God arbeidslyst nú á degi krítíkar. Föstudagurinn 13, ávísun á gott gengi ekki satt?

Bestu kveðjur

Labbinn

2:39 e.h.  
Blogger Mæja tæja said...

ertu hommi?

10:29 e.h.  
Blogger Atli said...

Góð mynd. Þarft bara að photosjoppa jólasveinahúfu inn á myndina og þá er hún klassi

12:55 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home