fimmtudagur, mars 23, 2006

Sommer in the City


Það er sól úti og loksins farið að hlýna. Og þar sem skap okkar Íslendinga stjórnast af veðrabrigðum þá er létt undir sálinni í dag. Framundan er helgi lærdómsins þar sem ekkert annað kemst að en skólinn.

Losnaði við Hauk í dag heim til Íslands þannig íbúðin verðu lögð undir skissupappír, skúmpappa og crayon liti. Mun blasta græjunum með sumartónum s.s. Skímó, Sálinni,Írafári og fleiri góðum böndum og inni á milli fær Björgvin Halldórs að njóta sín.

Fyrir þá sem ekki eru að kaupa þennan tónlistarsmekk þá mæli ég með nokkrum góðum:
Mew-Kashmir-Kasabian-TV2 þessi dönsku góðu bönd, Belle og Sebastian því ég er að fara á tónleika með þeim þegar Tinna Mjöll kemur og Bob Dylan-Johnny Cash og Willy Nelson fyrir country/folksong tóninn sem við öll elskum.

Þannig ég mæli með að allir fari að mínu dæmi, lofti út heima, komi sér í lærdómsgírinn og splæsi helginni í námið, ok?
Who´s with me?

mvh,
Anders Bengt Thorvaldsen

7 Comments:

Blogger Kolbrun said...

ég er með þér í öllu nema námspartinum. Já og svo get ég ekki loftað út því það er mínus 5 hérna megin.

Þannig að það er þá bara skímó eða Johnny Cash

3:25 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hvada vitleysa er i ter drengur? Tu veist jafn vel og eg ad tad var minkur sem drap haenurnar, ekki eg.
Bestu kvedjur
amma Binna

12:44 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Heim hvenær segiru? Hvað segiru um rómantíska daga í London í maí just you and me baby?

1:29 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

heyrðu herra Thorvaldsen, hvenær koma þilskipin sem ég pantaði á haustmánuðum? Þetta eru skútur sem þér sýnið mér!
Annars er ég að fíla Cash núna og þá sérstaklega American plöturnar.

Kv. af skerinu Magnús Stephensen amtmaður

9:24 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

hummmmmmm "losnaði við Hauk í dag" jájá... svona er þetta þá...... ég skil....

Haukur Thor

1:15 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

getum við borðað aftur á Peder Oxe's um helgina? Me love you long time. Gúmí

1:45 e.h.  
Blogger Heidrun said...

arnóhóhóhóhóóóóór...

10:05 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home