þriðjudagur, maí 09, 2006

Áááiii....

Er brunninn á nefinu og eyrunum eftir að hafa skokkað í 1 og hálfan tíma í dag.

Þetta ætti að kenna manni að íþróttir eru af hinu illa, þ.e. ef maður vissi það ekki áður.

Svo til að sýna að óréttlæti heimsins lýstur bara niður á aumingja mér þá er ég látin vera á tölvukúrsi frá 9-4 á hverjum degi uppi á háalofti meðan sterkir sólargeislarnir berja á þakinu og sjóða okkur aumingjana.

Úúúúff... það sem á eina manneskju er lagt, ég segi nú ekki annað!



;)

7 Comments:

Blogger addibinni said...

p.s. takið eftir á myndinni að neðan að ég er að safna sítt að aftan!!!

10:53 e.h.  
Blogger Kolbrun said...

sjénsinn bensinn Arnór Brynjar Þorsteinsson að þú hafir hlaupið í 1,5 klukkutíma.

Kaupi það aldrei

11:05 e.h.  
Blogger Atli said...

Guð erum með stórt stækkunargler sem hann beinir beint ofan á bygginguna þína og hlær þegar hann sér ykkur stykkna. Svona eins og maður gerir við maura í útlöndum.

1:19 f.h.  
Blogger addibinni said...

Kolla, have a little faith hérna, Scheisse!

Ok hljóp OG skokkaði í 1 og hálfan tíma.

Ánægð!?!?

1:54 e.h.  
Blogger Heidrun said...

...med hvad longu stoppi a barnum?

3:21 e.h.  
Blogger addibinni said...

Þetta kallar maður vini sína!

Það er fleira í lífinu en bjór og sígó!

Ég er maður nýrra áherslna, útivist, ferðalög og lestur góðra bóka er nýja stefnan.

Mar er nú ekki 3rd runner up í ungfrú Snæfells og Hnappadalssýslu fyrir ekki neitt.

5:30 e.h.  
Blogger Kolbrun said...

já ok ég skal kaupa þetta með 40 min stoppi á barnum og að þú hafir labbað með ;)

11:40 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home