Lazy bastard...
Hef ekki nennt að blogga þetta sumarið enda ekkert markvert að frétta nema fólk hafi áhuga á þrifum herbergja eða niðurröðun hópa í sal. Maður er líka andlaus eftir svo frjóan vetur og liggur því í dvala yfir sumartímann til að eiga orku í veturinn.
Svo er maður náttúrulega bundinn þagnarskyldu yfir því fá góða slúðri sem á sér stað hér á hótelinu þannig ekki er frá mörgu að segja.
En var bara að fá smá sjokk þegar ég uppgötvaði hvað það er stutt í að maður fari aftur út og rútínan hefjist aftur. Sambland af kvíða og tilhlökkun og maður á svo margt ógert áður en maður heldur af landi brott.
Er t.d. einhver sem á herbergi á laus i Köben í vetur. Ég virðist ekkert þokast upp biðlistann fyrir stúdentagarðana.
Ég fer kannski bara í fóstur til Guggu og Björgvins?!?
5 Comments:
Þagnarskyldu?????
Jæja Arnór...
Jæja Arnór, á ekkert að fara að blogga!!! Erum í Aarhus eins og er, en leggjum af stað í interrail ferð 9. sept. um Evrópu. Ferðabloggið er að finna á http://www.blog.central.is/runaroglaufey
bloggadu kaddl! Og fardu svo ad koma i heimsokn adur en vedrid verdur vont og veturinn kemur. Kisskiss Solli
You Lazy bastard, blogga :)
Skrifa ummæli
<< Home